jæja jæja
-Loksins loksins er Garðastræti 14 selt og ég get hætt að hafa áhyggjur af hinu og þessu... ég er alveg rosalega góð í að hafa áhyggjur sko, hef mjög ríkt ímyndunarafl og get látið mér detta alls konar ógurlegar aðstæður í hug. En þarf þess sum sé ekki lengur!
-Mætti annars snemma í skólann, sko miðað við að ég byrja ekki fyrr en 11, ætlaði nebbla að fara að lesa ýkt mikið í næringarfræði. Fattaði svo þegar hingað var komið að auðvitað gleymdi ég bókinni heima...dem.. nennti sko ekki að hjóla og sækja hana. Er þess vegna bara að hanga á netinu og fleira slíkt.. dembi mér svo kannski í eina fræðigrein
-er annars bara í góðu skapi og það liggur bara ljómandi vel á mér.. bráðum fer samt að hellast yfir mig skólastress þannig að það er eins gott að njóta þessa meðan það varir...
-adju

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home