miðvikudagur, september 10, 2003

Jedúddamía hvað það er langt síðan ég skrifaði eitthvað inn á þessa síðu. Þó hefur ýmislegt gert hjá mér. Helst ber að nefna það að ég og spúsi minn höfum fest kaup á þessari líka glæsilegu íbúð á Öldugötunni og munum flytja þangað í nóv/des. Erum á fullu núna að reyna að selja íbúðina okkar á Garðastrætinu, ÞEKKIRÐU EINHVERN SEM VILL KAUPA? Erum líka búin að selja bílinn þannig að bráðum verð ég ýkt fit af því að hjóla allt sem ég fer og svona...krossum allavega fingur. Í skólanum er alveg heljar mikið að gera, endalaus lestur vísindagreina og svo framvegis.. sem minnir mig á það að ég ætti víst að vera að lesa eina slíka í þessum skrifuðu orðum, best að fara að sinna því... leiter

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home