Jæja helgin búin og ég mætt spræk í vinnuna, eða kannski ekki mjög spræk, vakti frameftir í gær, æst að lesa... Svo vaknaði ég fyrir allar aldir því risahunangsfluga var eitthvað að andskotast í blómunum fyrir utan gluggann hjá mér.. þurfti að finna eyrnatappa til að reyna að sofa eitthvað. Gekk ekki mjög vel. Annars var þetta bara ágætis helgi. Tvö innflutningspartý, hjá líffræði Rósu á föst og Evu Kaaber á lau. Bara ágætis geim. Þarf samt núna að fara að koma mér út úr bænum í almennilega sveitaferð, með gönguferðum og annarri útivist. Spurning um að fara að framkvæma það, sumarið alveg að verða búið bara..

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home