Köttur úti í mýri...
..setti upp á sig stýri, úti er ævintýri..
Komin heim á Klakann. Gekk á endanum eftir erfitt ferðalag þar sem við vitleysingarnir drösluðumst með hátt í 30 kg í yfirvigt. Sendum einn og hálfan rúmmetra til Íslands með Samskipum í seinustu viku en í einhverri vitleysu skildum við næstum öll fötin okkar eftir í London. Enduðum því með allt of allt of mikinn farangur. En sem betur fer tókst Helga að sjarmera eldri bresk hjón, með lítinn farangur, í að tékka sig inn með okkur þannig að við sluppum við að borga fyrir yfirvigtina.
Nú tekur við meiriháttar törn í framkvæmdum á Öldugötu. Eða þannig. Ekkert meiriháttar kannski. Ætlum að skella einni umferð af málningu á veggina og svona. Svo bara er svo mikið maus að flytja inn, taka upp úr kössum og töskum og allt það. Þarf helst að gerast á mettíma þar sem ég byrja að vinna strax á miðvikudag og Helgi á mánudag í næstu viku.
Af vörninni er það að frétta að þetta bara gekk mjög vel. Átti fínt spjall við prófdómarana og stóð mig bara vel að eigin mati. Fékk niðurstöðuna næsta dag og náði sem sé "passed with distinction". Það er sem sé "með láði". Fékk distinction fyrir prófahlutann og líka fyrir verkefnið. Var bara hörkuánægð með það. Vona bara að LÍN fari að borga mér fljótlega.
Annars held ég að þetta sé nú síðasta eða með seinustu færslum á þessa blessuðu síðu. Sé ekki alveg tilganginn með því að halda henni úti lengur, þar sem við erum nú komin heim og svona. Skelli nú líklega inn svona best of myndum frá Ítalíureisunni þar sem maður er kominn með internettengingu á ný (hjá pabba og mömmu þ.e.a.s.).
Segjum þetta gott.. þakka þeim sem lásu:)
Bolla og Belgur í London
laugardagur, október 01, 2005
föstudagur, september 23, 2005
Timinn flygur
Nu erum vid komin aftur til London, buin ad pakka buslodinni i pappakassa og senda til Immingham tar sem teir fara um bord i skip Samskipa og til Islands. Otrulegt hvad madur getur sankad miklu ad ser a einu ari, stormerkilegt.
Bara vika i ad vid flytjum heim, frekar sorglegt finnst okkur, verdur erfitt ad kvedja. En margt gaman sem bydur okkar heima, verdur ljuft ad hitta vini og fjolskyldu aftur og svona. Annars er eg ad undirbua mig fyrir munnlega profid tessa helgi. For i svona mock viva i gaer med leidbeinandanum og uffffff, brilleradi ekki alveg. Var frekar pinlegt a stundum tar sem eg sat og stamadi og vissi ekkert i minn haus. Hafdi ekkert nad ad undirbua mig sokum Italiuferdar og svo pakkninga. Aetla tess vegna ad vera dugleg vid laerdom um helgina.
Annars ber tad til tidinda ad eg er buin ad rada mig i vinnu. Mer stodu sem se 3 storf til boda og eftir miklar vangaveltur og vitleysu akvad eg ad rada mig hja Islenskri erfdagreiningu (eins og i gamla daga). Lyst bara nokkud vel a og tad er otviraedur kostur ad geta gengid/hjolad til vinnu. Eg byrja 5.okt tannig ad tad gefst ekki mikill timi til ad koma ser fyrir a Oldugotunni. Helgi byrjar svo hja Mogganum tann 10. okt. Vid erum ansi fegin ad vera baedi komin med orugga vinnu, einu ahyggjuefninu faerra. Eniveis... back to the books. CU
sunnudagur, september 18, 2005
Bloggad fra Florens
Nu erum vid skotuhju stodd i listaborginni Florens. Ferdin er buin ad vera alveg yndisleg fram ad thessu. . Buin ad skoda allt sem haegt er ad skoda i Rom, held eg barasta. Eyddum einum degi a strondinni i Ostia, mjog naes ad baka sig adeins i solinni, fint ad fa sjavargoluna i 30 stiga hita. Tokum lestina til Florens i gaer, forum m.a. upp a hvolfid a domkirkjunni, ekki laust vid ad lofthraedslan leti adeins a ser kraela. Um kvoldid kom svo hellidemba, alveg urhelli. Vedrid fram ad thessu er buid ad vera svo gott, eiginlega of gott, t.e. 30 stig ad medaltali, tannig ad okkur bra heldur betur. Regnhlifasalarnir flykktust ut a gotur, og solgleraugna-og folsudu-tosku-salarnir toku allir fram regnhlifalagerinn sinn. I dag er svo bara "kalt", kannski svona 15 gradur. Brrrrr. Hvernig verdur eiginlega ad koma heim til Islands i skitakuldann? Hofum annars eytt deginum i dag i Uffizzi safnid. Eg er ekki ad ykja thegar eg segi OLLUM DEGINUM. Maettum i sakleysi okkar kl. half ellefu og tha blasti vid okkur TRIGGJA TIMA ROD. Eftir toluverdar vangaveltur akvadum vid ad skella okkur i hana, vildum ekki haetta vid menningarplanid;) Stodum sem se til skiptis i rod til ad koma inn a bevitans safnid i rumar 3 klst. Thegar loksins var komid inn var eg kominn i ansi mikinn klosettsprent og hofst mikil leit ad klosetti. I ljos kom ad i thessu stora og greinilega gridarlega vinsaela safni var klosettadstada a einum stad, t.e. vid UTGANGINN. Madur turfti ad ganga i gegnum allt safnid til ad fìnna tad. Tegar tangad var komid tok vid onnur LONG rod, ca. 20 min. Af tvi audvitad voru bara 6 kvennaklosett (NB fyrir allt safnid) og tvo af teim bilud. GAMAN. Forum svo a dyrustu kaffiteriu i baenum (og Florens er nu frekar dyr i thokkabot, dyrari en Rom a.m.k.) til ad hlada batteriin. En thegar okkur tokst loksins ad komast af stad og skoda safnid tha var thad audvitad mjog gaman. Fullt af meistaraverkum og flottum myndum og styttum. Urdum svona samt sma fyrir vonbrigdum af tvi thetta var buid ad vera svo erfitt allt saman fram ad thvi. Maeli allavega med tvi ad their sem hyggja a safnaferd i Florens nyti ser thann moguleika ad panta midana fyrirfram a netinu:)
Heyrdu, thetta er ordid allt of langt blogg um ekki neitt og eg a netkaffi. A morgun aetlum vid ad reyna ad skoda budirnar i Florens (keyptum ekkert i Rom nema einar thunnar buxur a Helga til ad hann kaemist inn i Vatikanid an thess ad bradna i gallabuxum i 30 stiga hita) og svo tokum vid lest aftur til Rom annadkvold. A thridjudag er thad svo London aftur.
Annars eru innan vid tvaer vikur ad vid flytjum heim (OMG) og nog ad gera fram ad tvi. Tarf ad koma ollu i kassa og senda heim. Laera og fara i munnlega profid. Kvedja alla:( Graeja ymislegt... Uff mikid ad gera framundan. Allt annars ad gerast i vinnumalum hja mer. Segi betur fra sidar thegar thad er ordid skyrt og fragengid.
kiss og knus fra Italiu. OLOF
þriðjudagur, september 13, 2005
Crea un nuovo post
Yndislegt i Rom. Buin ad taka turistapakkann a tetta, Colosseum, Foro Romanum, Circo Maximus, Sponsku threpin, Piazza Navona, Piazza Popolo, Trevi gosbrunnur, Castel Sant'Angelo, Bocca della Verita o.s.frv. Verdur madur ekki ad sja allt tetta fraega lika?
Buin ad borda mikid af godum mat og hafa tad nadugt. Voknum eldsnemma i fyrramalid til ad fara i Vatikanid og skoda allt tar, m.a. Sistinsku kapelluna. Svo verdur tad bara afslappelsi og rolegri skodunarferdir i tvo daga, svo Florens a laugardag.
Budirnar herna rokka almennt ekki, en fundum fullt af flottum svona "ungra-honnuda-budum" a leidinni ut ad borda adan og vonandi tekst okkur ad eyda svolitlu tar a naestu dogum. Eg kom m.a. augastad a ansi flott pils, meira af tvi sidar.
Arrivederci!
föstudagur, september 09, 2005
Stuttblogg
Mikið að gera hér í London seinustu vikuna. Björg kom og fór og Daði kom og er enn. Við förum svo til Ítalíu á morgun, í 10 daga.
Búið að eyða dágóðum tíma í búðum og á veitinga-og öldurhúsum, aðeins of miklum tíma ef til vill. Sólin búin að skína og skína og við brugðum okkur í strandferð til Brighton með Smára-Magnus fjölskyldunni. Nú er verið að reyna að pakka, bæði fyrir Ítalíuferðina og svo fyrir heimförina. Dótið okkar þarf nefnilega að vera klárt í gám strax eftir að við komum heim. Styttist í vörnina mína og þá bara alltbú. Helgi kominn með Moggavinnu, ég er öll í símaatvinnuviðtölunum þessa dagana, sjáum hvort kemur eitthvað út úr því. Að öllum líkindum birtist ekkert nýtt á þessari síðu fyrr en heim er komið, nema við nennum að henda færslu inn frá ítölsku netkaffihúsi. Sjáum til. Þangað til. Bæjó
miðvikudagur, ágúst 31, 2005
Næstum búið
-Áðan skilaði ég inn mastersritgerðinni. Vá, stórum áfanga lokið. Nú er bara vivan í lok september og þá er maður bara búinn með mastersnámið. Úlalla.
-Fórum annars í sveit um helgina. Kíktum í lítið þorp sem er rétt utan við smábæinn Didcot, sem er á milli Reading og Oxford. Bekkjarfélagi Helga bauð okkur þangað og höfðum við það notalegt þar. Grillað og spjallað og drukkið og skotið. Já æfðum okkur töluvert í að skjóta í flöskur og annað, mjög gaman.
-Kíktum líka aðeins á Notting Hill Carnival, það var ágætt, misstum reyndar af skrúðgöngunni. Við töpuðum okkur þó ekki í rassasveiflum heldur vorum bara saklausir áhorfendur.
-Nú er opnunin hjá Helga á morgun og svo tekur við náðugt frí fram að vivu. Systa kemur á laugardag og þá skal haft gaman. Sjoppa og drekka hvítt.
-Setti inn örfáar myndir hér.


