Ritstífla
Eitthvað gengur mér hægt og illa að klára þessa ritgerð mína. Er að vinna í umræðunum núna og á voðalega erfitt með að koma orðum að hlutunum og virka gáfuleg í skrifum. Það eru núna tæpar tvær vikur í skil...íhaaaa! Sem þýðir líka það að í dag eru bara rétt rúmar þrjár vikur í Ítalíuferð, gaman gaman. Nóg á döfinni þangað til: Daði vinur Helga kemur í stutt stopp, skil á ritgerð, opnun hjá Helga, Björg kemur í stopp og svo kemur Daði aftur... og svo RÓM:) Þegar við komum heim þaðan er alveg hræðilega lítill tími eftir hér í London:( Mikið á maður eftir að sakna þess að vera hérna...*snökt*

3 Comments:
Vá hvað styttist í þig kona! Gangi þér rosalega vel með þessa ritgerð :) Hlakka til að fá þig heim á skerið!
Sama uppi á teningnum hér. Vísa í væmið tilfinningablogg á síðu minni.
Uff hvad vid eigum eftir ad sakna ykkar:o(
Unnur
Skrifa ummæli
<< Home