mánudagur, ágúst 08, 2005

Ísland-stúdentsafmæli og sumó
Skrapp eins og áður sagði til Íslands um helgina. Mikið var nú rosalega gaman að kíkja svona aðeins heim, mjög vel lukkuð ferð. Mætti seint á fimmtudagskvöldi, reyndar var seinkun á vélinni þannig að það var kominn föstudagur. Sólveig var svo yndisleg að sækja mig og skutlaði mjög þreyttri heim. Var þó ekki þreyttari en svo að ég fékk mér vel af hvítvíni með mömmu og Björgu. Sátum langt fram eftir að sumbli og spjölluðum og höfðum gaman. Vaknaði því morknari en venjulega á föstudagsmorgun og fór sá dagur í alls konar útréttingar í semi-þynnkunni.



Um kvöldið fór ég svo á 5 ára stúdentsafmælið mitt. Alveg frábært að hitta bekkinn aftur eftir þessi ár og fyndið hvað það var eins og fólk hefði ekkert breyst á rejúníoninu sjálfu. Eða svona flestir. Sumir voru aðeins breyttari en aðrir;) Snilld líka að ég náði að hitta allar vinkonurnar á einu bretti nema því miður Unnsumömmsu. Skrallið hélt áfram langt eftir nóttu, fórum niður í bæ þar sem við Sólveig, Baldur og Björk skemmtum okkur m.a. saman. Dansaði meira en ég hef gert lengi, reyndar svo mikið að á endanum hætti ég að geta gengið, var svo illt í fótunum. Lét mig þó hafa það að kíkja á enn einn staðinn með Heiðu frænku sem ég mætti á Laugaveginum. Frábært kvöld bara í alla staði, takk allir fyrir skemmtunina.



Á laugardaginn var svo haldinn mafíufundur, eftir að ég skellti mér í nýja heitapottinn og flaut þar eins og kúkur í lauginni, ósofin og aftur hálfléleg eftir ævintýri næturinnar. Kvenleggurinn úr móðurættina kom sem sé saman í kaffi. Reyndar fékk Birgir bróðir að fyljga með. Var mikið fuglabjarg þar að vanda og afar skemmtilegt. Svo brunuðum við fjölskyldan í bústaðinn nýja, þýddi ekkert annað en að sýna mér herlegheitin. Erna litla skonsa kom með og gerði ég mitt besta i að reyna að sjarmera hana, tókst ágætlega en henni gekk samt ekkert sérstaklega vel að muna hvað ég hét. Maður er greinilega ekki skemmtilegri frænka en það að á einu ári gleymir hún manni bara alveg:) Hehehe, tók það þó ekki svo nærri mér og geri bara betur í vetur og læt hana gleyma Björgu systur í staðinn.

Í gær hélt ég svo aftur af landi brott. Auðvitað var aftur seinkun á vélinni en ég las bara mín tískublöð og lét það ekki angra mig mikið. Svo þegar ég var komin í túbið á Heathrow fattaði ég að það var engineering-work á bæði Piccadilly og District line þannig að ég festist á einhverri asnalegri stöð og þurfti að taka voða dúbíus mini-cab heim. Komst þó á endanum. Það hafði þó ekki farið betur en svo að þegar taskan, sem hafði lyktað grunsamlega illa á flugvellinum, var opnuð þá kom í ljós að rauðkálskrukka hafði þar opnast og lekið skemmtilega rauðum vökva yfir allan farangurinn minn. Það fór þó betur en á horfðist í fyrstu og held ég að flest mikilvægt hafi sloppið við rauða litinn. Fyrir forvitna er ég enginn rauðkálsfíkill en til stendur að halda íslenskt matarboð fyrir breskar vinkonur, planið er að sjóða hangikjöt og hafa íslenskt með því. Því fannst mér rauðkálið ómissandi.

Jæja, þetta er búið að vera 5-sinnum lengra blogg en til stóð í fyrstu. Mun líklega skella inn fleiri myndum af rejúníoni og bústaðarferð við fyrsta tækifæri. bleee

2 Comments:

At 7:06 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Takk fyrir síðast, skvís - mér finnst þú ekkert hafa breyst á síðustu 5 árum, kannski maður fatti það ekki þar sem maður hittir þína nú reglulega ;)

skil litlu frænku þína mjööög vel að hafa ekkert verið að reyna að leggja nafnið þitt á minnið, eitt ár er alveg huge stór hluti af ævi svona lítillar skonsu - maður eyðir ekki tíma í að læra nöfn á fólki sem maður sér ekki meira en helming ævi sinnar ;)

Kv. Ragga

 
At 12:37 e.h., Blogger Björk said...

Vá löng færsla
Mjög gaman að hitta þig á Íslandi, nú er það bara lokaspretturinn hjá þér er það ekki?
Gangi þér nú vel

 

Skrifa ummæli

<< Home