MYNDIR
Hér eru nokkrar myndir frá dvöl Mána og Kristínar hér í London.
Hér eru svo myndir frá því í gær þegar við Belgur fórum í 5 tíma göngutúr frá Richmod meðfram ánni að Kew Gardens og svo inn í þá að skoða. Það er sko svona grasagarður, rosalega fallegt og mikið af merkilegum plöntum. Verst bara hvað ég hef lítið vit á þeim þó svo ég sé líffræðingur. Svona er að vera af sameindalínu, maður þekkir ekki fugla og blóm, bara gen og prótein;) Sáum risavatnaliljur, fullt af fallegum rósum, alls konar tré og plöntur frá regnskógunum und so weiter. Sá svo m.a. hið margumrædda Gingko Biloba sem maður las þónokkuð um í grasafræðinni í den að mig minnir.
Eníveis.. nú er það bara Frón eftir 3 daga, það verður gaman.

2 Comments:
Nu hefdi thurft Snorkinn til ad ausa ur jurtaviskubrunninum.
þetta minnir mig á okkur systur í fjörunni við tjaldstæðið í Grundarfirði
hmmm...tveir biologar sem ekki vissu mun á blöðruþangi og hrossaþara og gátum ekki nefnt einhverjar pöddur til að bjarga lífi okkar
ps) mér finnst glerlistverkið eins og sæðisfrumutorfa...jæks
Björg
Skrifa ummæli
<< Home