miðvikudagur, júlí 13, 2005

La dolce vita
Við vorum að panta okkur ferð til Rómar í september. Um að gera að nota sér tækifærið og kaupa ódýr flug til Evrópu meðan maður er enn í London. Ætlum að vera heila 10 daga, þ.e. viku í Róm í íbúð sem við erum búin að leigja okkur og svo 3 nætur einhvers staðar sem er enn óákveðið. Bara slappa af og njóta lífsins, skoða sig um og borða góðan mat, drekka gott vín etc.

Annars flutti ég fyrirlestur í dag, partur af lokaeinkuninni minni. Var með kynningu á rannsókninni minni. Gekk ágætlega, gat svarað öllum spurningum og svona. Reyndar dottaði annar prófdómarinn meðan ég flutti fyrirlesturinn, ekki mjög jákvætt. Reyndar komst ég svo að því að hann var hálfdottandi hjá flestum, þannig að vonandi var þessu ekki beint gegn mér persónulega. Ég skil hann svosum alveg, við vorum 14 sem fluttum fyrirlestur í dag og ég var sú seinasta í röðinni.
Á morgun flytur Helgi svo fyrirlestur á Symposium á vegum skólans hans. Á föstudag er það svo Du Cane Road Lab Monkey Dinner Party. Við líffræðinördarnir ætlum að nördast aðeins saman. Sí jú.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home