Hræðilegt ástandið hérna í London. Andrúmsloftið í vinnunni mjög undarlegt í dag, allir í uppnámi og stressaðir, að hringja í vini og vandamenn og athuga með ástandið. Bara helmingurinn af mannskapnum mættur og öryggisgæslan á svæðinu mikil, nauðsynlegt að vera með öryggispassann á sér og svo framvegis. Fékk e-mail þar sem fólki var gefið leyfi til að gista á skrifstofunum, margir sem komast ekki heim í kvöld þar sem allar samgöngur liggja niðri. Helgi búinn að fara í þrjú viðtöl við íslenska fjölmiðla, bara mini-celeb í dag. Meira seinna, meðal annars nýjar myndir og fleira. T.d. mynd af "nýja" sjónvarpinu okkar sem við fundum úti á götu með Ara og Evu. Adju.

5 Comments:
Gott að þið eruð heil á húfi. Hafði áhyggjur af ykkur... Sá svo Helga í fréttunum og vissi þá að þið voruð í lagi.
gott ad heyra ad thid erud a ok
já helgi er bara orðinn semi-þekktur hér á Fróni, samt leiðinlegt að svona þurfi til að verða frægur... gott að vita að þið hafðið það gott :)kv. Ragga
Já, manni létti nú að heyra í Helga í hádegisfréttunum í gær. Gott að þið eruð í góðu lagi.
Sá einmitt Helga í fréttunum, góð upphitun fyrir Séð og Heyrt fyrir svona celeb ;) En annars bara létt að vita að þið eru heil á húfi :)
Skrifa ummæli
<< Home