fimmtudagur, júní 09, 2005

Það er að koma helgi
Eftir annasama seinustu helgi (tónleikar, leikhús, bíó osfrv) verður þessi öllu rólegri. Á morgun ætlum við þó að fara til Clapham-tríósins í grill og sleikja kannski sólina ef hún lætur áfram sjá sig. Svo koma pabbi og mamma á mánudag og höldum við með þeim til Frakklands á miðvikudag, eða ég þ.e., Helgi verður aðeins seinni á ferðinni. Jössss, hvað ég hlakka til að komast aðeins í almennilegt frí.
Það verður rauðvín og ostar á boðstólnum á tjaldborðinu mínu á hverjum degi:D

ps. Gleymdi að monta mig um daginn. Fékk að vita að ég er með distinction út úr prófahluta námsins, fékk samt ekki nákvæma niðurstöðu. Nú er bara að massa verkefnið og ritgerðina;)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home