mánudagur, maí 30, 2005

Sól og blíða
Jæja þessi langa helgi senn á enda. Sniðugt hjá Bretum að hafa alltaf frídagana sína á mánudögum. Við erum búin að njóta helgarinnar í botn, enda veðrið búið að vera svo dásamlegt. Á föstudag vorum við að spóka okkur í Soho, enda Helgi að skrifa grein um hverfið sem birtist í nýju aukablaði Moggans í næstu viku. Fórum út að borða og höfðum það huggulegt. Á laugardag sleppti ég mér aðeins í búðum, kastaði nokkrum krónum á Ken. High Street. Gaman að því, keypti soldið af sumarfötum á okkur skötuhjúin. Svo lá leið okkar í heimsókn til litlu fjölskyldunnar í Clapham, æðislega gaman að hitta litla Tómas, máta hann aðeins og sjá hvað hann hefur stækkað mikið. Okkur var boðið í partý um kvöldið en vorum léleg og beiluðum, grilluðum í staðinn á tröppunum og sötruðum rautt. Í gær afrekuðum við svosum ekkert sérstakt, bara almennt chill og Helgi að skrifa ritgerð (ég var í opinberu fríi frá ritgerðinni minni um helgina). Dagurinn í dag byrjaði með þrumum og rigningu, ekki mjög spennandi, en svo braust fram þessi blíða og við nýttum tækifærið og fórum í langan göngutúr um Battersea og Chelsea. Ég bara eeelskaaa að búa í London á svona dögum. Allt svo fallegt og grænt og svo mikið mannlíf og stemmning úti við. Ég held að fólk átti sig ekki alveg á því hvað er mikið af grænum svæðum í London, endalaust af almenningsgörðum. Einhvers staðar heyrði ég því fleygt að í London væri meira af görðum/grænum svæðum en í nokkurri annarri stórborg.
Já eins og lesa má er ég í góðu skapi og jákvæð eftir helgina. Setti inn nokkrar myndir sem sjá má hér.
Um næstu helgi er svo von á Sólveigu og Guðmundi til London, við Sols erum að fara á píkupoppstónleika, þ.e. Destiny's Child. Jeiii... gaman gaman. Verst að það er spáð rigningu alla helgina:(

1 Comments:

At 4:41 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Alltaf gaman að skoða myndirnar ykkar :))) Góða skemmtun á tónleikum!

 

Skrifa ummæli

<< Home