mánudagur, maí 02, 2005

Yndælis helgi
Við Londonbúar erum búin að hafa það prýðilegt yfir þessa löngu helgi. Á föstudag fórum við út að borða og á smá pöbbarölt í Soho og svo í bíó. Á laugardag var reynt að smíða ritgerð og menningast og svo um kvöldið fórum við á mjög skemmtilegt leikverk hérna í Hammersmith. Reyndar var þetta svona blanda á milli leik- og dansverks og höfðum við mjög gaman að. Í gær fórum við svo í langan göngutúr um Norður-London, mjög gaman að kynnast borginni svona í gönguferðum. Set inn nokkar myndir af því á eftir. Í dag fórum við í breska grillveislu og átum mest og nú halda Bretarnir að Íslendingar séu svakaleg átvögl, sem við kannski erum. Það hefur heldur ekki skemmt fyrir þessari indælu helgi að hitinn er búinn að vera yfir 20 stigum alla helgina! En á morgun er það bara grákaldur hversdagsleikinn á ný. Best að reyna að njóta þess sem eftir er af helginni.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home