Ég horfði á The Machinist í gær. Góð mynd en það sem sló mig mest er ástandið á honum Christian Bale í henni.
Mér fannst hann alveg skelfilegur svona og mér finnst þetta ansi mikið á sig lagt fyrir hlutverk í bíómynd. Ætli hann verði ekki tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir að grenna sig svona mikið. Það virðist vera þemað að vera tilnefndur þegar þú breytir líkamanum mikið, sbr. Hillary Swank í Million Dollar Baby, Nicole Kidman í the Hours, Charlize Theron í Monster og Renée Zellweger í Bridget Jones.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home