þriðjudagur, apríl 12, 2005

Tíminn líður alveg skuggalega hratt, það verður komið haust áður en maður veit af því, æ vil ekki hugsa til þess. Helgi fer eins og áður sagði í stutt stopp til Íslands um næstu helgi og helgina þar á eftir koma mútt og systa, gaman gaman. Síðan er löng helgi hérna í Bretlandi, því það er frídagur 2. maí og þá erum við að spá í að kíkja eitthvað út fyrir borgarmörkin. Síðan fer maí annars bara í ritgerðir á fullu og slíkt, stór skil hjá okkur báðum í lok þess mánaðar. Annars er sól og blíða og maður orðinn sólbrunninn á nefinu. Vonandi mun þetta haldast eitthvað áfram. Mér finnst þessi páskamynd af Mána og Ernu sæt og skelli því hér inn til að lífga aðeins upp á síðuna.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home