miðvikudagur, mars 09, 2005

*Verkefnið byrjar og fer mjög hægt af stað. Er bara að elta einhverja konu allan daginn og horfa á hana sýna mér hvernig á að gera hitt og þetta. Aðallega hlutir sem ég kann alveg að gera fyrir. En svona er víst að byrja á nýjum stað. Líst samt vel á liðið og þetta verður örugglega gaman þegar ég er farin að ráða mér sjálf og gera það sem ég vil.
*Komin með kvef aftur og hita og hata veikindi. Kenni bölvuðum kuldanum í Ungverjalandi og síðar London um. Sem betur fer er farið að hlýna aftur og ég sé vorið alveg í hyllingum.
*Bara tvær vikur rúmar í að við kíkjum heim til Íslands í páskamat og páskaegg og barnaafmæli o.s.frv. Verður fínt að hitta aðeins fjölskylduna og vini.
*Sols kemur í stutt stopp í hálfan sólarhring eftir rúma viku, Það verður snilld þar sem hún verður akkúrat í útlöndum þegar við verðum á klakanum. Ef hún er heppin verð ég kannski búin að kaupa ammlisgjöf handa henni;)
*Ætlum að skella okkur á tónleika með Lenny Kravitz í sumar og miðar komnir í hús og allt. Þó við séum kannski ekki mestu aðdáendurnir er stutt að fara, eru hérna í Carling Apollo í Hammersmith sem er svo gott sem í næsta húsi og frekar ódýrt líka. Mér finnst hann líka hafa gert fullt af skemmtilegum lögum þó ég hafi ekki mikið heyrt af því nýjasta. Fannst hann samt mun meira kúl með dredda og afró, soldið mislukkaður með þetta slétta hár, minnir mig solidð á Prince eða Michael Jackson:D


0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home