Hin ýmsu frí
Er komin í formlegt upplestrarfrí núna. Kláraði sem sé fyrirlestrapart þessa mastersnáms núna á föstudaginn og tekur nú við tveggja vikna upplestrarfrí. Fer svo í þrjú próf (21., 24. og 25. feb) og fæ að þeim loknum 10 daga frí áður en rannsóknarverkefnið tekur við. Alvöru fríinu verður varið í Búdapest-Debrecen í 5 daga og svo í London með Mána og Kristínu í 5 daga. Jess, hlakka til maður. Helgi spurði mig í gær hvort ég myndi núna hverfa í 2 vikur eins og ég er vön að gera í prófalestri. Honum finnst ég sem sagt svona þurrpumpuleg þá og ekki góður félagsskapur, ussussuss. Hann er hvort sem er á fullu í ritgerðarsmíðum þannig hann er ekkert líflegur sjálfur. Já sem sagt ekki hresst par hérna á Adie Road næstu vikurnar.
En að öðru. Við bókuðum miða frá Íslandi til London þann 30. mars þannig að við komum heim í nokkra daga páskafrí. Áttum sem sé flug heim þann 25. sem við tímdum ekki að henda í ruslið (keyptum fram og til baka eftir jól til að fá ódýrari miða) þannig við eyddum ennþá meiri pening í flug hingað til London aftur til að komast aðeins heim. En til að fá það flug aðeins ódýrara keyptum við svo enn eitt flugið til Íslands en það verður seinasta flugið sem við kaupum þangað því það er dagsett þann 1. okt. Sem sé dagurinn sem við flytjum aftur heim, í bili a.m.k. Við erum sem sé búin að eyða alveg hellings pening til að spara smá pening. Sniðugt:) Eníveis.. farin að læra.. Sí jú

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home