þriðjudagur, desember 28, 2004

Seinheppin?
Ég hef alltaf verið og mun sjálfsagt alltaf vera alveg afskaplega seinheppin. Þessi jólin er ég búin að vera alveg ofboðslega kvefuð og ólekker og nú er svo að ég er komin á sýklalyf sökum ennis-og kinnholubólgu. Ekki þykir mér það nú skemmtilegt svona í þessu stutta jólafríi á Íslandi. Til þess að gera laugardaginn síðasta enn ánægjulegri tókst mér að dúndra hárþurrku framan í mig og fá hálfgert glóðarauga og þótti mér það miður. Í gærkvöldi fannst mér samt eitthvað vanta upp á óheppni mína þannig að ég ákvað að reka vísifingur á kaf í augað á mér meðan ég var að punta mig fyrir jólaboð. Auðvitað tók við mikill sársauki. Björg læknanemi skolaði augað með allskonar mixtúrum (eða reyndar bara augndropum) en allt kom fyrir ekki og augað var enn aumt. Ég harkaði nú af mér jólaboðið og hélt þetta myndi lagast í nótt. En nei nei, þegar ég vaknaði í morgun var ég enn mjög sár og aum í auganu þannig að þegar leið á daginn ákvað ég að heimsækja augnlækni. Haldiði ekki að komið hafi í ljós að undir augnloki mínu hafði komið sér fyrir þetta fína sandkorn sem var auðvitað búið að gera mikinn óskunda og rispa augað en læknirinn góði náði því burt og þykir mér það mikill léttir. Nú er ég sem sé einu sandkorni fátækari (sem og 3000 kr sem læknirinn tók fyrir að fjarlægja sandinn) en auganu ríkari. Já og gleðileg jól svona meðan ég man og gleðilegt ár líka. Efast um að ég bloggi meira á þessu ári, nema ég lendi í fleiri slysum og vilji deila því með ykkur.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home