Ég er á leiðinni...
Bara einn og hálfur klukkutími í að við kveðjum Adie Road í bili og höldum heim til Klakans. Hér í London er 12 stiga hiti en sé á mbl.is að við okkur taka -3 gráður heima. Jibbí. Vona að það sé jólasnjór.
Á morgun, Þorláksmessu, er svo þéttskipuð dagskrá hjá okkur. Helgi fer og sækir Mána og knúsar hann og þeir fara svo í skötu og spítalaheimsókn á meðan ég fer til læknis, í klippingu og brúnkusprautun! Jebbs, þú last rétt. Ég ætla að verða appelsínugul þessi jólin og testa svona margumtalaðan brúnkusprautuklefa. Langar meira að vera orange/brún heldur en blágulgræn eins og ég er núna.
Svo er það bara að hitta vini og vandamenn, jess hvað ég hlakka til að knúsa alla og kyssa og smita af ógeðslegu kvefpestinni minni. Ég ætla svo út í sjoppu að kaupa mér kúlusúkk, sterkan brjóstsykur og bingókúlur og hjálpa til við að skreyta Frostaskjólið og svo í bæinn annaðkvöld og hitta fleiri og og og ... vei vei, ég er á leiðinni, alltaf á leiðinni...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home