Neikvæð í dag
-Í dag fór ég ekki í skólann af því að ég er lasarus. Það er leiðinlegt að vera lasin heima. Ég er ekki það lasin að ég liggi í móki uppi í rúmi en samt það lasin að ég nenni ekki að læra. Ég má ekki fara út af því ég hef það ekki í mér þar sem ég mætti ekki í skólann. Ég veit ekki hvað ég get gert. Datt í hug að baka en langar að baka piparkökur. Á ekki uppskrift, á heldur ekki í þær og heldur ekki kökukefli og svona mót til að skera þær út. Veit ekki hvar þau fást þannig að ég get ekki keypt þau en má hvort sem er ekki fara út. Er ég ekki skemmtilega upplífgandi.
-Það eru alveg að koma jól, á morgun er 1.des. Ég veit ekki hvað lengi mig hefur dreymt um prófalausan desembermánuð. Nú þegar ég hef loksins fengið ósk mína uppfyllta þá veit ég ekki alveg hvað ég á að gera við allan þennan frítíma. Kannski tengist það því að mér leiðist hér heima í dag. Er bara svo vön því að sitja sveitt við próflestur alveg fram að jólum. Er óvön því að geta farið og dúllað mér í búðum hvenær sem ég vil. Það venst þó. Er ekki að segja að ég vildi skipta við aumingja greyin sem sitja sveitt á bókhlöðunni núna.
-Mig langar í kúlusúkk og sterkan brjóstsykur. Af hverju eiga útlendingar bara vont svona bland í poka nammi. Af hverju búa þeir ekki til lakkrís og sterkan brjóstsykur. Af hverju bara sykurhúðað gúmmí? Gaf bekknum mínum að smakka grænan ópal í haust og öllum fannst það vont, ein þurfti meira segja að spíta því út úr sér. Þvílíkt var óbragðið. Þeim fannst harðfiskur samt góður, það mega þau eiga.
-Ég ætla að hætta að blogga núna því að þetta er allt of neikvæð færsla. Ætla að skella mér í kraftmiklu ofursturtuna mína og reyna að hressa mig við. Verð að vera hress í kvöld því þá kemur Snorri frændi og líffræðingur í aðra stutta heimsókn. Hann er að fara á tónleika hér í kvöld en við ætlum að gera eitthvað skemmtó saman á morgun. Þá er eins gott að ég verði ekki veik.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home