Heyrðu
Ég verð að byrja á því að koma óánægju minni á framfæri með frammistöðu lesenda í kommentakerfinu. Það er afar dapurt að sjá alltaf 0 komment við hverja færslu þó svo ég viti alveg að það eru allavega 2 eða 3 sem lesa þetta pár;) Alltaf gaman að fá viðbrögð sama hversu ómerkileg þau eru... og hana nú.
En að öðru. Enn ein vikan senn á enda hérna. Það er alveg fáránlegt hvað tíminn flýgur, bara 5 vikur í að við komum heim í jólafrí. En það er sko meira en nóg að gera þangað til. Alls konar verkefni í skólanum og svo er líka alltaf næg afþreying hérna í stórborginni. Það er bara spurning hversu mikil ferðalög og svona maður nennir að leggja á sig til að komast á áfangastað. Er t.d. boðið í partý á laugardagskvöld en það er í Islington. Þegar maður er háður almenningssamgöngum þá er alveg spurning hversu langt maður nennir að fara fyrir nokkra öllara. Á morgun stendur ScanSoc, sem er félag skandinavíubúa í Imperial, fyrir pub crawl og það er stutt að fara þangað. EN eftir að hafa næstum dáið úr leiðindum á tali mínu við leiðinlega svíann í partýinu um seinustu helgi, sem ég NB veit að verður þarna, þá heillar það ekki mjög, ekki í bili allavega. Í næstu viku ætlum við hins vegar að fara á tónleika með Zero 7 og svo heppilega vill til að þeir eru haldnir í Hammersmith Apollo sem er svona 7 mín ganga. Snilld.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home