fimmtudagur, október 07, 2004

Skóli
Jámm nú er ég loksins byrjuð formlega í skólanum, eftir 5 vikur af hangsi sem var alveg í það mesta. Líst bara ágætlega á þennan hóp, hef auðvitað ekki talað við alla 22 en nokkra þó. Það eru 5-6 Grikkir í bekknum, hef ekki yrt á neitt þeirra því þau hafa strax á öðrum degi myndað félag og hlaupa alltaf í burtu strax og einhver frítími gefst. Virka samt alveg ágæt svona útlitslega, heheh þó maður eigi víst aldrei að dæma eftir útliti;) Svo eru þrjár breskar, tvær vikra mjög fínar, ein doldið skrítin, og heitir líka stórfurðulegu nafni sem ég veit engan veginn hvernig á að skrifa. Fran hin þýska virkar líka mjög fín, hefur búið hér í 3 ár (tók undergraduate hér). Svo er ein frá Japan sem ég gleymi alltaf hvað heitir, Uke held ég. Hún er rosa almennileg og er þegar búin að lofa mér japönsku matarboði. Mjög fyndið samt hvað hún ruglar l-unum og r-unum saman. Hún var alltaf að tala um brod í gær og ég fattaði ekki fyrr en mjög seint að hún átti við bLod. Svo er ein frá Kýpur sem lærði í USA og svo auðvitað Jennifer frá Michigan sem er alveg super bandarísk. Hún er 22 ára og trúlofuð, er að fara að gifta sig næsta sumar og er eins og hún segir sjálf "very domestic", alltaf að elda og þvo þvott fyrir unnustann. Hún var í kaþólskum stúlknaHÁSKÓLA þar sem engir strákar máttu fara inn á dormið og klæðist í settleg peysusett og smakkar örugglega ekki bjór. Mjög almennileg engu að síður og leynir kannski á sér hvað varðar stuð. Svo er allskonar fólk sem ég man ekki eftir núna en held sem sé allt í allt að það gætu leynst fínustu karakterar þarna inn á milli og vonandi fólk sem er til í að kíkja á pöbbinn endrum og eins:) Reyndar skilst mér að sú þýska sé að vinna að slíkri skipulagningu fyrir morgundaginn, vona að það gangi eftir.
Næsta klausa er fyrir þá sem hafa einhvern áhuga eða skilning á námsefninu, aðrir sleppi henni. Þessir fyrstu dagar eru svona upprifjunarfyrirlestrar og maður hefur ekki lært margt nýtt. Svo sum ágætt að rifja upp en soldið þreytandi að sitja heilan dag að hlusta á fyrirlestra um The Genetic Code, PCR, Sequencing og Recombinant DNA technologies. En það voru víst einhverjir skurðlæknanemar þarna á meðal okkar í dag sem voru ekki með þetta á hreinu, en kommon hvenær er skurðlæknir að fara að gera Southern Blot?? Alvaran byrjar hins vegar í næstu viku og ég hlakka til að sjá hvernig verður.
Annars ætla ég ekki að þreyta ykkur meira með svona upptalningum, lofa hressara bloggi næst. Ble

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home