mánudagur, október 04, 2004

Nú geta allir farið á fullt að senda okkur bréf og pakka og hringt í okkur því allar helstu upplýsingar eru komnar inn á síðunu, hér til hægri:)Annars fór ég á svona reception fyrir postgraduate nema í Graduate School of Life Sciences and Medicine áðan. Alveg endalaust af svona móttökum og ræðuhöldum. Hitti þar nokkrar stelpur sem verða með mér í kúrsi, tvær breskar og ein bandarísk. Virkuðu bara fínt á mig. Hún bandaríska Jennifer var nú samt alveg aaagalega amerísk en það er nú bara gaman að því. Hitti svo vonandi restina á miðvikudaginn. Stalst samt í listann hjá kennaranum og sá að það eru svona ca. 30 manns með mér "í bekk". Nokkrir frá UK, nokkrir Grikkir (þeir sækja víst mikið í þennan kúrs..), nokkrir Japanir, einn frá Hong Kong, annar frá Bangladesh, sá þriðji frá Chile o.s.frv. Sýndist þetta aðallega vera stelpur á svipuðum aldri og ég, örfáir strákar þarna inn á milli og ein kona sem er aldursforseti, fædd 1949. Já svona er nú það, meira síðar.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home