föstudagur, október 22, 2004

Nördarnir
Halló halló. Það hefur nú ekki mikið drifið á daga okkar þessa vikuna. Kristín og Máni fóru á þriðjudag og var sorgleg stund hjá þeim feðgum á flugvellinum. Annars gengur lífið sinn vanagang, skólinn að komast á full speed, maður byrjaður í verklegu og svona. Líst bara nokkuð vel á þetta allt saman, að minnsta kosti virðist aðstaðan í verklegu stofunni í fínasta lagi. Við nördaparið skelltum okkur svo á karateæfingu í Shotokan klúbbnum í Imperial í gær. Ágætis æfing bara og höfum við hug á að endurtaka leikinn. Þar sem ég hef ekki iðkað karate í þó nokkurn tíma þá finnur kroppurinn svo sannarlega fyrir átakinu í dag, vöðvar sem ég var búin að gleyma að ég hefði erum helaumir. Helgarplönin eru á þá leið að Helgi sem sjálfkrafa hefur tekið að sér hlutverk skemmtanastjóra stefnir á opnanir og skrall í kvöld með bekknum sínum, á morgun förum við í afmæliskaffi til Unnsupunnsu sem fyllti árin 24 í gær (til lukku esskan:*) og að því loknu fer ég á pub crawl með bekknum mínum. Hinn sænski/pólski/dubai(ski?) Adam skipuleggur það af miklum móð og hef ég fengið í hendurnar ógurlega tímatöflu sem segir á hvaða pub við förum kl. hvað, hvað við verðum lengi á hverjum pub o.s.frv. Þeim sem þykir ég æst í að skipuleggja ættu bara að sjá listann. Ég er sko ekki neitt í samanburði við hann. Kannski við smellum af nokkrum myndum svo áhugasamir geti skoðað fólkið sem við umgöngumst hér á hverjum degi. Bis später..
ps. skelli hér inn mynd af nýja uppáhaldsdýrinu okkar, otri. Þeir heilluðu okkur gjörsamlega upp úr skónum í dýragarðinum um seinustu helgi. Algjörir snillingar sem leika sér að því að kasta bolta og grípa og eru einu dýrin fyrir utan okkur sem kunna að nota verkfæri (brjóta skeljar með steinum). Þeir voru einfaldlega hressustu dýrin í garðinum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home