IKEAferð taka tvö
Úff, það getur verið erfitt að búa í stórborg. Á sunnudaginn ákvað ég að fara aðra ferð í IKEA þar sem ýmislegt vantaði enn þó svo slík ferð hafi verið farin fyrir mánuði síðan. Til þess að komast í næstu IKEA verslun verð ég að fara 10 stöðvar með túbinu, skipta og fara 7 stöðvar í viðbót. Stuð. Þegar ég var komin á Baker Street þar sem best er að skipta kom í ljós að hin lestin gekk ekki lengra sökum engineer works. Sem sé ég til baka aftur til Hammersmith, 5 pundum fátækari (travelcardið kostar það). Ojoj Ólöf ekki kát, með skeifu niður á hæla. Reyndi aftur í gær. Fór í lestinni og viti menn, það gekk. Þurfti hins vegar að ganga 20 mín frá tubestöðinni að margumræddri verslun. Það hófst. Upphófst þá mikið verslunaræði og ég stútfyllti kerruna af allskonar nauðsynjum og óþarfa. Kostuðu herlegheitin 70 pund sem mér þótti ekki mikið miðað við magn. Hins vegar fylltu vörurnar tvær svona risabláar IKEA töskur plús fullur plastpoki af leirtaui og skólataskan mín. Ég rétt gat loftað þessu, hvað þá gengið aftur út að lestarstöð þannig að ég hoppaði upp í eina strætóinn sem fer eitthvað í áttina að Hammersmith (North Kensington fyrir kunnuga). Í ljós kom að þessi strætó fer eins mikla krókaleið og mögulegt er. Einnig kom í ljós að ég misreiknaði mig þegar ég áætlaði góðan stað til að fara út á til að komast í hentugt tube. Ég þurfti sem sé á endanum að fara í 3 stútfulla strætisvagna og eitt tube með allan varninginn. En þetta gekk á endanum og ég komst heil heim, tveimur klukkustundum eftir brottför frá IKEA. Í morgun vaknaði ég svo með mestu strengi sem ég hef fundið í öxlunum. Ég er eins og spítukarl og get varla hreyft höfuðið. Niðurstaðan er að stofan er jú eitthvað smekklegri og ég á betri eldhúsáhöld en mæ god hvað mig verkjar í skrokkinn. Ekki fleiri IKEAferðir á þessu ári takk fyrir, tja nema ég fái burðardýr og sendiferðabíl.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home