Smá ferðasaga
Jæja, nú eru saumaklúbbsvinkonurnar farnar aftur héðan og allt fallið í ljúfa löð á ný. Helgin var ansi annasöm og skemmtileg. Hún hófst með ferð á á Brick Lane á indverskan stað á föstudagskvöldið. Fannst fólki maturinn missterkur en lagðist þó vel í alla, að því að ég best veit. Á laugardag tókum við daginn snemma, fórum á markaðinn í Camden Town og svo í verslunarferð dauðans á stræti er kennt er við Oxford og svo í Covent Garden! OMG segi ég bara. Sleppti aðeins fram af mér beislinu í fatakaupum, svona miðað við námsmannabudduna. En fékk svo skemmtilegar fréttir af afmælisglaðningi á bankareikningi þannig að veskinu og mér leið aðeins betur og ég var pilsi, belti og bol ríkari. Um kvöldið eftir komumst við Hammersmithbúar á endanum til Clapham þar sem við Unnur buðum í síðbúinn afmælismat. Helmingurinn að mér meðtalinni hélt gamninu áfram fram eftir nóttu á einhverjum cheesy næturklúbbi í Clapham. Við skemmtum okkur alveg prýðilega þar og héldum svo stuðinu áfram í strætó heim. Ég held að þeirri ferð sé best lýst með orðunum rauðvín, Pez(Pierce), blóðpoki og Thames. Sunnudagurinn var svo túristadagur þar sem gengið var frá Green Park niður að Thames. Buckingham, Trafalgar og Westminster voru m.a. litin augum. Helmingurinn fór svo í Saatchi Gallery og London Eye. Ég og Guðrún nokkurn veginn dóum úr lofthræðslu á tímabili en tókst þó að njóta ferðarinnar og vorum stoltar af sjálfum okkur að ferðinni lokinni. Enduðum svo á ítölskum stað þar sem mér tókst að spilla máltíðinni minni með því að brenna kokið í fyrsta munnbita (svona hefnist gráðugum svínum). Á mánudag hófst grákaldur hversdagsleikinn aftur hjá mér þar sem ég fór í skólann en gestunum tókst að eyða seinustu aurunum í búðum. Stelpurnar héldu svo aftur til síns heima í gærkvöldi. Það er allar nema Björk en hún fór eldsnemma í morgun. Við eyddum seinustu Londonstundum hennar í þægilegt vídeógláp og lakkrísát áður en hún hélt aftur á vit ævintýranna í Köben. Björk býður einmitt upp á myndir af ferðinni hér, von er á fleirum inn á þennan link á morgun. Bendi einnig á nýjar myndir hér til hliðar, nokkrar frá afmælismorgninum mínum og nokkrar af okkur stelpunum.
Á morgun koma svo pabbi og mamma í heimsókn og hlakka ég rosa til að hitta þau. Það er ekki laust við að maður sakni familíunnar smávegis. Sérstaklega þegar maður fær send yndisleg vídeó af öllum í sundi eins og ég gerði í dag:)
Bis später...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home