mánudagur, nóvember 15, 2004

Myndir
Vil bara benda á það að ég er búin að bæta inn tveimur nýjum "albúmum", þ.e. Dyraparty og Bland í poka. Þar má sjá myndir úr partýinu á laugardaginn (enskir skýringatextar fyrir bekkarfélagana;) sem og nokkrar myndir frá heimsókn pabba og mömmu og örfáar túristamyndir af okkur Helga. Vil einnig benda sérstaklega áhugasömum á þennan link en hér setti pabbi inn nokkrar myndir úr ferðinni.
Fyrir þá sem vilja útskýringu á rauðu blómunum og krossunum á "Bland í poka" myndunum þá fylgir hér örlítil útskýring. Á elleftu stundu á ellefta degi ellefta mánaðar á hverju ári þá hafa Bretar 2 mínútna þögn til að minnast fallinna breskra hermanna. Þeir setja m.a. upp svokallaðan Field of remembrance hjá Westminster Abbey þar sem hver einasti látinn hermaður fær lítinn kross til minningar um sig. Afskaplega tilkomumikið get ég sagt ykkur að koma þangað og sjá alla krossana og hugsa til þess að hver þeirra standi fyrir fallin hermann. Rauðu blómin, eða Poppy eins og þau kallast, eru tákn þessarar minningarhátíðar og standa fyrir vígvellina þar sem hermennirnir dóu. Lesa má allt um táknræna merkingu þeirra hér. Seinustu tvær vikurnar hafa allir Bretar borið svona blóm í barminum og verð ég að viðurkenna að ég var soldið lengi að fatta hvað það stóð fyrir en nú er ég sem sé orðinn expert. En höfum þetta ekki lengra í bili... ble.

p.s. þessa mynd tók pabbi af Helga í þrívíddarbíóinu sem er í Science Museum. Varð bara að skella henni hér inn, Helgi minnir hér að mínu mati óneitanlega á Elton John.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home