sunnudagur, nóvember 28, 2004

Fyrsti í aðventu
-Sit hér og er að reyna að lesa um Fanconi anemia. Ég er þó meira svona að hlusta á Frank Sinatra syngja um hvít jól og að horfa á Helga setja jólaseríu í gluggann hjá okkur. Það er nefnilega eins og allir vita fyrsti sunnudagur í aðventu og ég í jólaskapi.
-Við fórum til Cambridge í gær í skoðunarferð. Ákváðum að hafa það huggulegt og skreppa eitthvað út fyrir borgina. Cambridge er voða huggulegur bær, fullt af fallegum húsum og notalegt. Skoðuðum King's College Chapel sem er afskaplega flott og ég setti mig aðeins inn í ættartré kóngafjölskyldunnar bresku. Ég er ekki frá því að ég sé aðeins farin að skilja betur hvernig allir þessir kóngar tengjast. Annars er ekki margt að gera í Cambridge svona fyrir túrista. Fórum huggulega út að borða og enduðum svo bara á því að kaupa nokkrar jólagjafir. Mér finnst sem sé gaman að koma til Cambridge í einn dag en veit ekki hvort ég vildi vera þar mikið lengur. Hlýtur samt að vera allt í lagi að búa þar. Ég meina, mér finnst gaman að búa í Reykjavík og ekki er hún mikið meira spennandi.

-Er að fara á eftir að hitta Birnu og Heiðu vinkonu hennar á Old Spitalfields markaðnum. Birna kom hingað í óvænta heimsókn til Heiðu sem býr hér og hlakka ég til að hitta þær. Kannski finn ég einhverjar jólagjafir þar. Ég er sem sé komin á fullt í jólagjafakaupum. Búin að vera miklu duglegri að leita að jólagjöfum en að læra, sem er ekki gott því ég er að vinna poster með tutor hópnum mínum sem ég hef ekkert sinnt ennþá. Best að reyna að lesa smá áður en ég fer austur í bæ. Bleee..

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home