mánudagur, nóvember 22, 2004

30 dagar
Jahá, í dag er nákvæmlega mánuður þar til við Belgur komum á Klakann í jólafrí. Í tilefni þess ætti ég auðvitað að hefja hið árlega jólaniðurtalningardagatal... Eeeennn þar sem ég er ekki að deyja úr leiðindum í prófalestri þetta árið þá held ég að ég nenni varla að liggja á netinu á hverjum degi og leita að ósmekklegum jólamyndum. Þannig þeim verður bara skellt inn þegar ég er í stuði. Hér er samt smá vetrar/jólagrín.

Annars bara allt fínt að frétta héðan. Jólabarnið ég er í fríi í dag og í stað þess að vera rosa dugleg að læra ætla ég að fara aðeins í búðir og byrja að huga að jólagjafakaupum. Verð að nýta tækifærið og fara svona á virkum degi þegar það er aðeins minni jólageðveiki í búðunum hér.
Það er búið að vera ansi kalt hér í London seinustu daga en sem betur fer er orðið hlýtt aftur og sólin farin að skína. Reyndar var ekkert svo kalt úti, svona á íslenskan mælikvarða, kannski rétt um frostmark. Vandamálið er hins vegar það að það verður svo skítkalt í íbúðinni hjá okkur. Það er alveg ótrúlegt hvað Bretar leggja lítinn metnað í að þétta glugga og svona. Hér á Adie Road er líka svo skemmtilega laust við allt sem heitir almennileg kynding. Það tíðkast víst hér eins og heima að hita upp með vatnsofnum, nema hvað hér er vatnið auðvitað hitað með gasi áður en því er dælt á ofnana. Leigusalinn okkar hefur hins vegar ekki nennt að splæsa í slíkt og því er bara einn gasofn í stofunni og svo rafmagnsofn í svefnherberginu. Saman eiga þeir að halda okkur heitum en það er ekki alveg að gera sig. Seinustu daga er ég búin að vera vafin inn í flísteppi í ullarsokkum og flíspeysu að reyna að athafna mig í íbúðinni. Ég svaf meira að segja í föðurlandinu um daginn og Helgi er búinn að fá náttföt og sefur í þeim. Það hefur hann ekki gert síðan hann var smástrákur. Já við söknum sem sé smá hlýju og góðu húsanna á Íslandi. En eníveis... þotin í búðir. Sjáumst.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home