sunnudagur, desember 05, 2004

Annar í aðventu
Í dag eru 17 dagar þar til við skötuhjú komum á Klakann og einungis 19 dagar til jóla. Jólabarnið ég er samt orðin ansi óþolinmóð, farin að hlakka ansi mikið til að komast heim og hitta vini og vandamenn. Reyndar er ekki svo hræðilega langt síðan ég sá fólk síðast en samt. Styttra síðan ég sá suma en aðra. T.d. er alveg ofboðslega langt síðan ég sá Ernu litlu skottu seinast, foreldra hennar og svona. Hlakka til að ganga Laugaveginn á Þorláksmessu og fara í Hæ-keppni og tapa. Hlakka til að skreyta jólatréð. Hlakka til að fá jólamat. Namminamm, alveg með vatnið í munninum við tilhugsunina um kjöttímabilið sem er framundan. Hlakka til að hafa það kósý með jólabók og borða endalaust mikið af jólanammi og fara ekki úr náttfötunum fyrr en tími er kominn á næsta jólaboð. Hlakka til að sjá hvort Níels er orðin fitubolla og knúsa hann svolítið. Hlakka til að spila actionary með familíunni (sem ég ætla að krefjast að verði gert). Hlakka til að fara að kaupa flugelda og hlakka til að sprengja þá á gamlárskvöld og fá stjörnuljós. Hlakka til að heyra í skipsflautunum á miðnætti (eða heyrir maður í þeim í Frostaskjóli?). Hlakka til að fara á skrall með vinkonum mínum (sem ég ætla einnig að krefjast að verði gert). Ohh...ég hlakka alltaf svo til. En það er langt og svo langt að bíða. Og allir dagar svo lengi að líða...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home