Vika
Eins og áður hefur komið fram er ég farin að hlakka ansi mikið til að koma heim í jólafrí. Fór í seinasta fyrirlesturinn á þessu ári í dag og seinasta verklega tímann. Nú er bara vika í heimförina og er nóg að gera þangað til. Fyrir áhugasama (ef einhverjir eru) þá er planið fyrir vikuna svohljóðandi:
-fim: læra fyrir próf (svokallað mock exam)
-fös: fara í próf og Björg kemur
-lau: skemmta mér með systu
-sun: skemmta mér meira með systu og kveðja hana
-mán: við skötuhjú förum til Bath að spóka okkur
-þri: komum heim frá Bath og pökkum
-mið: TIL ÍSLANDS
Eitt stykki þvörusleikir í tilefni dagsins.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home