laugardagur, janúar 15, 2005

10 atriði sem gera það betra að búa í London miðað við Reykjavík:

Fjölbreyttara mannlíf – allar sortir af fólki af öllum þjóðernum og trúflokkum.

Meira um að vera - endalaust af listsýningum, tónleikum og ýmis konar uppákomum.

Ódýrari matur – kjúklingurinn nánast gefins miðað við á Íslandi.

Ódýrara áfengi – pint á 2.50 pund á hverfispöbbnum.

Ódýrara í bíó - 4.40 pund í hverfisbíóinu (þó svo það geti farið upp í 12.50 pund á West End) – einnig mun fleiri bíó með meira úrval.

Endalaust af skemmtilegum búðum – margar hverjar eru ekki heima - bæði dýrar (t.d. Urban Outfitters) og ódýrar (t.d H & M).

Maður þarf ekki að eiga á hættu að hitta einhvern sem maður þekkir hvert sem maður fer – getur t.d. farið á náttbuxum út í indverjabúðina á horninu án þess að skammast sín.

Styttra á meginlandið og MIKLU ódýrara – hægt að fara til hvaða Evrópuborgar sem er fyrir lítinn pening - kostar t.d. 0.01 pund að fljúga til Búdapest (ehe, reyndar án skatta).

Betri almenningssamgöngur – ákjósanlegra að ferðast með strætó eða túbinu heldur en að vera á einkabíl –það verður seint sagt um Reykjavík.

MIKLU betri fjölmiðlar – bæði að gæðum og magni – meira úrval fyrir minna verð – kerlingatískublað kostar hér tæp 3.00 pund en kosta allt að ferfalt meira heima – hér er líka ríkissjónvarpið skemmtilegt og ÁN AUGLÝSINGA.

...og ég gæti sjálfsagt talið upp miklu fleiri hluti. Reyndar gæti ég örugglega talið upp jafnmarga hluti sem gera Reykjavík að ákjósanlegri stað en London (sem er gott þar sem við hyggjumst nú snúa aftur þangað að lokinni þessari dvöl) og talið upp fjölmarga galla stórborgarinnar.
En í dag er ég jákvæður Londonbúi sem þykir gaman að búa hér í stórborginni:)

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home