Buns of steel... on their way
Ég er búin að vera að reyna að skrifa fyrirlestur í dag og er þar af leiðandi búin að líta inn á bloggsíður allra þeirra sem ég þekki eða kannast við eða þekki jafnvel ekki neitt. Fannst ég eiginlega knúin til að blogga soldið líka þar sem ég hef ekki staðið mig vel í því á þessu ári. Sem sé til í allt annað en að læra.
Heilsuátakið gengur svona la la. Er búin að vera dugleg að mæta í leikfimina en ekki jafndugleg að borða hollan mat. Jú ég er að vísu hætt að hakka í mig sætindi og svona í skólanum og er að reyna að draga úr snakkneyslu. Mér finnst nammi bara SVOOO GOOOTT. Ekkert smá erfitt að vita af fullt af drakúla brjóstsykri, Draumi og Marsi uppí í skáp. En verð að beita mig aga. Fékk mér t.d gulrót áðan í staðinn fyrir súkkulaði. Mjög gott mjög gott.
Annars hef ég ekkert skemmtilegt til að hlakka til núna. Förum jú til Búda þann 26. feb en ég vil ekki fara að hugsa um það strax því í millitíðinni þarf ég að lesa og fara í próf. Missum af þorrablóti Íslendingafélagsins í London því það er sama dag og við förum. Týpískt að 2 atburðir beri upp á sama dag þegar ekkert er búið að gerast í langan tíma. Eníveis, farin að læra og að pumpa lóðum;)


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home