laugardagur, janúar 08, 2005

Í London á ný
Fannst tími til kominn að setja nýja færslu hérna efst á síðuna, langt síðan bloggað var seinast.

Við erum sem sé komin aftur hingað til Bretaveldis og líkar það vel. Ég var eitthvað lítil í mér þegar ég kvaddi Ísland enda höfðum við það svo gott þar í jólafríinu en það er alveg farið núna. Gaman að vera byrjuð aftur í skólanum og svona. Búið að vera mikið gestastand þessa fyrstu daga í London en nú hægist um og langt í næstu gesti, sem er alveg ágætt. Rosa gaman að fá gesti en líka gott að fá frí frá slíku stundun;) Nú tekur bara harkan sex við í lærdómi, sýning og ritgerð hjá Helga en fyrirlestur og prófalestur hjá mér.

Erum annars búin að bóka okkur flug með hinu rosalega flugfélagi Wizzair til Búdapest í lok febrúar þar sem hitta á Björgu systur og kíkja svo til hennar í Debrechen. Gaman að því. Að lokum má svo telja til tíðinda að ég hef fjárfest í líkamsræktarkorti í Fitness First sem er hér í næstu götu, Hammersmith Grove fyrir þá sem þekkja til. Stefnan er tekin á Buns of Steel eins og þjálfunarprógrammið mitt kallast. Fróðlegt að sjá hvernig það mun ganga.

Myndir úr jólafríinu verða ef til vill settar inn á síðuna á næstu dögum, vorum þó merkilega ódugleg að brúka vélina heima á Íslandi.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home