Vísindamaðurinn
Já loksins komin niðurstaða í rannsóknaverkefnismálið mikla. Ég fékk að lokum verkefnið sem mig langaði mest í og kallast það:
The role of placenta specific imprinted genes in human fetal growth restriction
Ég ætla ekkert að reyna að útskýra það frekar hér á þessum vettvangi en ef einhverjir vilja fræðast meira verða þeir bara að hafa sambandi við mig:) Ég mun hefja vinnu við þetta verkefni strax og ég klára prófin, eða svo gott sem.
Annars var ég að fá sent frá Bjarnheiði (fyrrverandi yfirmanni) á Keldum svo fínt veggspjald sem Helga (fyrrverandi samstarfskona) vann úr niðurstöðum nýsköpunarverkefnisins míns og þær kynntu á ráðstefnu í Ísrael á dögunum. Ég var sem sé annar höfundur þar sem ég vann stóran part vinnunnar en Helga hinn hlutann og gerði allan pósterinn.
Þannig að vísindamaðurinn Ólöf er bara að gera góða hluti á alþjóðavettvangi;)
Nii... segi bara svona

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home