föstudagur, febrúar 18, 2005

Skítapési
Já ég heldur betur "jinxaði" það þegar ég skrifaði að það væri eins gott að Helgi myndi ekki smita mig af skítapestinni. Auðvitað vaknaði ég með hana í gærmorgun og er enn lasarus í dag. Skita (mmm...kannski aðeins of miklar upplýsingar;), beinverkir, smá hitavella og almenn vanlíðan fer ekki vel saman við lærdóm og því varð ekki mikið úr honum í gær. Sem er ekki gott þar sem fyrsta prófið er á mánudag. Verð að reyna að pína mig áfram í dag.
Helgi er hins vegar allur að hressast, sem er gott. Þá veit ég líka að á morgun verð ég vonandi búin að ná mér að fullu. Annars mest lítið að frétta. Meira síðar...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home