Komin aftur
Já við skötuhjú erum komin aftur heim úr kuldanum í Búdapest-Debrecen. Það var alveg rosa gaman í ferðinni. Flugum fyrst til Búdapest og vorum í soldið sérstöku gistiheimili á frábærum stað í borginni. Við fórum á alveg geggjaðan franskan/Norður-afrískan stað á laugardagskvöldinu þar sem við bara átum og átum og átum fyrir ekki neinn pening. Mæli sem sé með Mokka ef einhver er á leið til Búdapest á næstunni. Alveg hræbillegt en samt er Búdapest talsvert mikið dýrari en Debrecen. Á sunnudeginum tókum við svona túristarúnt í skítakulda. Skoðuðum svona það helsta, gengum um litlar sætar götur, fórum upp á Kastalahæðina, í National Galleríið kíktum á eitthvað túristakaffihús og svo kom Bjögga sys og hitti okkur og við fórum með henni að Hetjutorginu og gengum í ískulda um einhvern garð og svona. Bara basic tjill sem sagt. Mjög næs. Fórum aftur rosa gott út að borða með henni um kvöldið og á mánudeginum var meira túristast í ískulda og svo fórum við seinnipartinn með lest til Debó. Þar tók við svona heilsutreatment. Ég fór í facial og handadótarí og augnháralitun og alles bara og borgaði svo fáránlega hlægilega lítið fyrir. Algjör snilld. Á meðan fór Helgi í nudd hjá nautinu Attilla. Svo fóru Björg og Yousif með okkur í Thermal sem var líka alveg frábært. Þeir í Ungverjalandi eru nefnilega með svona jarðhita eins og við og eru stoltir af því. Alls konar laugar með mismunandi hitastigum og maður svona trappar sig upp og endar í sjóðheitri gufu og svo píndi Björg okkur til að hoppa út í 20° C laugina beint eftir hitabaðið og sjæse hvað það var sjokkerandi fyrir skrokkinn. En manni leið vel á eftir. Svo var bara skrallað soldið um kvöldið og svo heim daginn eftir... Mjög fín ferð í alla staði fyrir utan helvítis kuldann. Setti inn myndir.
MYNDIR HÉR
Nú bíður mín hins vegar tiltekt. Máni og Kristín á leiðinni og þarf að vera búin að græja húsið fyrir þau. Adju

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home