Af fólki, sushi, sprengjum og flugferðum
+ Það er svo skemmtilegt að fara út á lestarstöð og lenda í því að hún sé lokuð vegna gruns um sprengju í lestinni. Að öllum líkindum hefur einhver gleymt poka eða tösku í lestinni en það má auðvitað ekki taka neina sénsa, skiljanlega, og því er öllu batteríinu lokað meðan sprengjuleitarmenn tékka á öllu. Helgi lenti sem sé í þessu í morgun og tók eins og gefur að skilja strætó í staðinn.
+ Um helgina var mikið um að vera, fórum í verslunarleiðangur á laugardag og hittum svo Margréti í Covent Garden þar sem við snæddum eitthvað það versta og dýrasta "pastasalat" sem ég hef séð. Höfum heldur aldrei þurft að ganga jafnlangt í leit að Starbucks stað síðan við komum hingað, vanalega eru þeir á hverju götuhorni en þegar mann langar skyndilega í Frappucino í góða veðrinu þá er staðinn hvergi að sjá. Það var samt gaman að hitta Margréti sem var hér í borginni á ráðstefnu. Mættum langri langri mótmælagöngu gegn Íraksstríðinu og var forvitnilegt að sjá mannfjöldann og allar löggurnar sem stóðu vörð. Fórum svo í japanskt matarboð til Yuka um kvöldið og smökkuðum allskonar forvitnilega og bragðgóða japanska rétti, sushi og sashime, en þurftum að fara snemma heim og misstum því víst af þvílíku skrallpartýi.
+ Sólveig kom sama kvöld í stutt tæplega sólarhringsstopp og var gaman að hitta hana aðeins þótt stutt væri. Hún lenti í hræðilegum flughremmingum úti á Stansted daginn eftir þegar hún var að reyna að komast í vélina til Salzburg og ætla ég ekki að rekja þær í smáatriðum en við sögu kemur lest sem misst var af, hjól sem skrúfa þurfti í sundur, töskur sem leita þurfti í og fleira í þeim dúr.
+ Á meðan á flughremmingum Sólveigar stóð þá sátum við Helgi í vellystingum ásamt Unni bumbulínu og Friðrik að borða grillmat í góða veðrinu. Þau ríkisbubbarnir búa svo vel að hafa þetta fína grill í garðinum sínum (auk þess að hafa tjörn með gullfiskum;). Hef ég grun um að það verði nýtt oftar í sumar.
+ Í gær tókum við skötuhjú svo þá ákvörðun að lengja örlítið Íslandsdvöl okkar þannig að ykkur vinum okkar og vandamönnum eflaust til ómældrar ánægju (ehaggí?) verðum við tvo aukadaga heima.
+ En best að snúa sér aftur að vinnu, myndir frá hinum ýmsu atburðum verða líklega settar inn fljótlega, eins og alltaf mun ég tilkynna það hátíðlega hér á síðunni:)

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home