Jei, komin með internetið í lag hérna í vinnunni.
Já vorið er svo sannarlega komið hérna í Englandi, spáð 20° C í dag, ekki slæmt það, alls ekki slæmt. Ég er líka komin í sumarjakka, stuttermabol og pils. JESSSS. Bretarnir í kringum mig segja mér hins vegar að vorið sé alls ekki komið, þetta góða veður verði horfið áður en maður viti af. En um að gera að njóta þess meðan það varir segi ég nú bara. Verst að vera lokaður hérna á rannsóknarstofunni allan daginn og geta ekki legið úti í sólinni. Á morgun fer örugglega að rigna bara í tilefni þess að það er frídagur, er það ekki alltaf þannig?
Annars bara allt gott að frétta, búið að vera mikið að gera í sósjallífinu í þessarri viku, fórum út á þriðjudagskvöld og miðvikudagskvöld og ég fór líka á pöbbinn í gær í tilefni St. Patrick's day. Í kvöld er frí og annaðkvöld er svo japanskt matarpartý hjá Yuka, japanskri bekkjarsystur og Sols kemur í eina nótt. Á sunnudag er grill hjá Unnsu og Friðrik og á þriðjudag út að borða með bekknum. Já finnst ykkur ekki gott að vita hvað svona er á döfinni;).
Svo er aldeilis farið að styttast í Íslandsferð okkar, bara vika. Mmmm hlakka til að borða páskamat og páskaegg. Sjáumst þá.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home