Við erum ekkert voðalega dugleg að skrifa hérna inn. Lífið gengur þó sinn vanagang hérna í Lundúnum, verkefnið mitt mjakast hægt áfram og Helgi er á fullu í myndunum sínum. Það er þriggja daga helgi fram undan og hafði ég hugsað mér að nýta hana afskaplega vel í ritgerðarskrif en þá er auðvitað spáð bongóblíðu um helgina. Íslendingurinn ég get ekki hugsað mér að sitja við tölvuskjáinn í steikjandi sól og er því svona hálft í hvoru að vona að það rigni bara í staðinn. Er það asnalegt?
Annars ætlum við að skella okkur í leikhús um helgina, búum nú í svo mikilli leikhúsborg en höfum bara tvisvar farið í leikhús. Í þetta skiptið ætlum við ekki á West End heldur í hverfisleikhúsið okkar að sjá verkið Hymns sem fær voða fína dóma. Hlakka til.
Rakst annars á þetta á flakki mínu um netið. Hvar á þetta heimilislausa fólk eiginlega að komast í eldhús til að nýta bókina?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home