Magasár
Ohh nú fer senn að líða að því. Ég er nú þegar komin með stóran hnút í magann bara við tilhugsunina. Ég þarf senn að fara að huga að atvinnumálum haustsins. Þarf að fara að senda út CV-ið og bréf til hinna og þessa og reyna að dobbla einhvern í að ráða mig í vinnu þegar við flytjum heim. Ég held ég fái magasár. Þetta er það leiðinlegasta sem ég geri, ég er hræðilega léleg í að selja sjálfa mig og reyna að láta mig virka spennandi. En ég vil ekki enda atvinnulaus. Vill einhver ráða sameindalíffræðing með mastersgráðu í Molecular Medicine í vinnu frá og með 1. október? Plís? Einhver?

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home