Menningarleg;)
Já plön okkar fyrir kvöldið hafa breyst. Ætluðum til Stoke Newington (lengst úti í rassgati, í N-London) í Eurovison-partý hjá bekkjarfélögum Helga. Þar sem við vorum dottin úr öllu Eurovison-stuði eftir frammistöðuna á fimmtudagskvöldið og þar sem við vorum í öðru semi-partýi í gær, þá ákváðum við að vera aðeins mennningarlegri.
Erum sem sé búin að kaupa okkur miða á tónleika með Paolo Conte í Royal Festival Hall. Honum hefur verið lýst sem "hinum ítalska Tom Waits" og held ég að það geti orðið nokkuð gaman.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home