laugardagur, maí 14, 2005

-Sólin ákvað að yfirgefa London og ég verð að viðurkenna að ég er oggulítið fegin. Þarf að vera lokuð inni þessa helgi og þá næstu að klára innganginn að mastersritgerðinni. Í staðinn maka ég á mig brúnkukremi og reyni að virka sumarleg þannig. Í þessum skrifuðu orðum er Kanebo Honey Glow að sinna sínu starfi og eftir örfáa tíma mun ég ef til vill hafa tekið svona breytingum.

eða ekki.. kemur í ljós.
-Partý í kvöld hjá grískum bekkjarbróður, í tilefni nafnadags hans. Af hverju eigum við ekki svoleiðis? Þau fá pakka og hamingjuóskir og svona, bara af því að það er nafnadagurinn þeirra. Eins og að eiga tvo afmælisdaga. Vildi að ég héti eftir einhverjum dýrlingi, þá gæti ég farið að halda upp á daginn.
-Nú fer að styttast í júróvísjón og smá krísa hér á bæ. Það er nefnilega einhver móttaka fyrir mastersnema Imperial á fimmtudaginn þegar undankeppnin er og við hvort sem er ekki með BBC3 sem sýnir frá atburðinum. Þannig að það stefnir í að maður missi af undankeppninni. Það gæti verið allt í lagi ef við komumst áfram og þá verður bara meira stuð í júróvisjón-partýi á laugardag en fúlt ef við dettum út að hafa þá misst af þessu. Ég hef held ég aldrei misst af júróvisjón en þessi undankeppni er eitthvað svo asnalegt fyrirbæri (hehe, eins og aðalkeppnin sé það ekki). Ætli hægt sé að horfa á þetta á netinu í gegnum RÚV? Mér er spurn.

4 Comments:

At 7:33 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Já ég þarf víst að bíta í það súra epli að missa af forkeppninni líka þar sem hún er bara sýnd á einhverri kapalstöð og nei, ég tel engar líkur á að það verði hægt að horfa á þetta á netinu hjá RÚV því þeir mega bara sýna efni sem þeir framleiða sjálfir. Við verðum því bara að treysta á að við komumst áfram og halda Júróvisjónpartý á laugardaginn!

Svanhildur.

 
At 9:48 f.h., Blogger Björk said...

Ja Íslendingarnir í Köben eru byrjaðir að skipuleggja júróvisjonpartý. Aðalvandamálið er að allir búia í litlum íbúðum með lítil sjónvörp!!!

 
At 9:22 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Ég held alveg örugglega að við séum með BBC3 þannig að þið eruð alveg velkomin hingað...hins vegar lofa ég ekki að það heyrist mikið í Selmu fyrir söngnum í Tómasi;o)
Unnur

 
At 2:10 e.h., Blogger Ragnheidur said...

...þið verðið nú samt að kjósa ;)

 

Skrifa ummæli

<< Home