SNILLD
Við Sólveig fórum á tónleika með þeim í gærkvöldi í Earls Court. Vá. Það var svoooo gaman. Við umbreyttumst í mestu gelgjur í heimi og skríktum og dönsuðum og skemmtum okkur frábærlega. Ekki skemmdi að hafa sötrað á hvítvíní á veitingastað áður;) Á tímabili vorum við svo dolfallnar að við vorum bara orðnar ástfangnar af þeim, Beyonce sérstaklega. Þvílík skutla. Þær tóku öll skemmtilegu lögin sín og Beyonce tók nokkra af sínum eigin rassahristingsslögurum. Við vorum alveg í þvílíkum trans eftir tónleikana. Við fórum svo niður í bæ að hitta Helga og Guðmund sem á meðan höfðu farið á grínklúbb í Soho. Þeim fannst við heldur betur skrítnar og óþarflega hrifnar af þeim, Helgi var farinn að efast um kynhneigð mína og sá ýmsa möguleika í stöðunni;) Tókum leigubíl heim, þar sem við Sólveig tókum smá söngsyrpu, Helga og Guðmundi fannst við ekki jafnsniðugar og okkur fannst sjálfum. Vildu helst ekki kannast við okkur. En við skemmtum okkur stórkostlega þetta kvöld. Algjört möst að sleppa pjásuskapnum í sér lausri öðru hvoru.

6 Comments:
Hehe, vá hvað hefur verið gaman - heyrðist það a.m.k. af Naughty girl í beinni útsendingu ;)
OMG, hvað hefur verið gaman hjá ykkur... vild'ég hefði verið með ykkur :(
GE
Hehe - það satt, það má alls ekki láta pjásuskapinn safnast upp! ;)
ok...ég er græn í framan af öfund...
eru ekki til myndir????
xxx
Björg
Við vorum hvorug með myndavél en Sols tók nokkrar mislukkaðar á símann sinn. Á þeim myndum virkaði Beyonce virkaði svona eins og ljóshnöttur á sviðinu.
Blindhaugafullar, ekki skrítnar. HS
Skrifa ummæli
<< Home