Fríííí
Mamma og pabbi komu í gærkvöldi, nú eru þau líklega á leið aftur hingað til London frá Immingham, þar sem bíllinn þeirra kom í land (í gámi að sjálfsögðu, sendu hann nefnilega í skipi). Á morgun verður svo haldið af stað í Frakklandsreisu. Brunað til Dover þar sem mamma ætlar að syngja um "the white cliffs.." og svo með ferju til Calais. Svo bara spilað eftir eyranu. Ætlum meðal annars að kíkja hingað.

1 Comments:
Góða ferð. Þið verðið ekki svikin af Mont Michel. Hreint undur!
Svanhildur.
Skrifa ummæli
<< Home