föstudagur, júlí 22, 2005

..
Það var alveg magnað á tónleikunum með Lenny í gær... algjör snilld...hann tók eiginlega bara gömul lög og við tróðum okkur frekar framarlega og sungum með hástöfum og dönsuðum og hoppuðum og og og... alveg orðlaus bara...svo fyrir okkur kvenkynið sakaði ekki að hann reif utan af sér hlírabolinn í lokin;)

Að alvarlegri málefnum, skrítið að ganga í vinnuna í morgun. Tók ekki strætó þar sem hann fer í gegnum Shepherd's Bush þar sem ein af "sprengingunum" var í gær. Þarf hins vegar að ganga um þetta svæði til að komast í vinnu og það var allt lokað enn og frekar erfitt að finna krókaleið til að komast á leiðarenda. Löggur alls staðar og skrítið andrúmsloft í túbinu sem ég þurfti á endanum að taka til að komast framhjá öllum lokununum. En life goes on... tökum á móti Mána og Kristínu í kvöld, það verður gaman. Planað að fara í Legoland á morgun...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home