miðvikudagur, ágúst 03, 2005

Íbúð í London til leigu
Ísland á morgun í 3 daga, stutt stopp en mun nota það vel:)
Nenni ekki að vera hér í vinnunni/skólanum lengur, ætlaði að klára allt dótið á labbanum í dag og á morgun en er ekki alveg að sjá það gerast. Allt hefur gengið á afturfótunum í dag og í gær. Þannig að næsta vika fer að einhverju leiti í labbann en annars er það bara tölfræði tölfræði. Verst að ég veit ekkert hvernig ég á að snúa mér í henni, lífmælingarnar forðum daga skildu ekki mikið eftir sig. Svo er það bara að klára að skrifa ritgerðina, skil 31.ágúst....íhaaaaaa... svo tekur við þriggja vikna frí, sem verður varið með Bjöggu sys hér í London og á Ítalíu. Þann 26. sept er svo vivan ógurlega, aka munnlegt próf og svo verður mín bara meistari í vísindum. Gaman að þessu...
Ef þú eða einhver sem þú þekkir er á leið hingað til London til náms eða búsetu þá vil ég bara benda á að leigusalinn okkar er að leita að nýjum leigjendum hingað á nr. 2 Adie Road og hann vill bara Íslendinga (er íslenskur sjálfur). Þannig að láttu endilega orðið berast...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home