laugardagur, október 01, 2005

Köttur úti í mýri...
..setti upp á sig stýri, úti er ævintýri..

Komin heim á Klakann. Gekk á endanum eftir erfitt ferðalag þar sem við vitleysingarnir drösluðumst með hátt í 30 kg í yfirvigt. Sendum einn og hálfan rúmmetra til Íslands með Samskipum í seinustu viku en í einhverri vitleysu skildum við næstum öll fötin okkar eftir í London. Enduðum því með allt of allt of mikinn farangur. En sem betur fer tókst Helga að sjarmera eldri bresk hjón, með lítinn farangur, í að tékka sig inn með okkur þannig að við sluppum við að borga fyrir yfirvigtina.

Nú tekur við meiriháttar törn í framkvæmdum á Öldugötu. Eða þannig. Ekkert meiriháttar kannski. Ætlum að skella einni umferð af málningu á veggina og svona. Svo bara er svo mikið maus að flytja inn, taka upp úr kössum og töskum og allt það. Þarf helst að gerast á mettíma þar sem ég byrja að vinna strax á miðvikudag og Helgi á mánudag í næstu viku.

Af vörninni er það að frétta að þetta bara gekk mjög vel. Átti fínt spjall við prófdómarana og stóð mig bara vel að eigin mati. Fékk niðurstöðuna næsta dag og náði sem sé "passed with distinction". Það er sem sé "með láði". Fékk distinction fyrir prófahlutann og líka fyrir verkefnið. Var bara hörkuánægð með það. Vona bara að LÍN fari að borga mér fljótlega.

Annars held ég að þetta sé nú síðasta eða með seinustu færslum á þessa blessuðu síðu. Sé ekki alveg tilganginn með því að halda henni úti lengur, þar sem við erum nú komin heim og svona. Skelli nú líklega inn svona best of myndum frá Ítalíureisunni þar sem maður er kominn með internettengingu á ný (hjá pabba og mömmu þ.e.a.s.).

Segjum þetta gott.. þakka þeim sem lásu:)

7 Comments:

At 4:20 e.h., Blogger Baldtur said...

Til lukku með áfangann og að vera kominn heim

leitt að þú ætlir að hætta blogginu

KK frá Boston

B

 
At 11:41 f.h., Blogger Björk said...

En thad er samt enntha til folk sem byr ekki i sama landi og thu tho ad thu sest flutt til Islands... sem hafa gaman af thvi ad lesa hvad thu ert ad gera.
En til lukku med frabæran arangur i skolanum.

 
At 9:27 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

eg er nu ekki satt vid ad thid haettid ad blogga...

sammala bjorku, thad er nu folk i utlondum :)

til hamingju med arangurinn, glaesilegt

Bjorg

 
At 7:58 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Erum strax farin að sakna ykkar hérna í London:(
Hvenær komiði í heimsókn?!?
Unnsapunnsa:)

 
At 12:20 e.h., Blogger Olof said...

ohh og vid strax komin med frahvarfseinkenni... vid komum vonandi a tessu ari.. enn allt oljost samt..

 
At 12:56 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Til hamingju með árangurinn - það er greinilegt að þið standið við bloggleysið ;)

Sjáumst! :)

 
At 7:38 e.h., Blogger Björk said...

thu lofadir mer emeilum fyrst thu hættir ad blogga.

 

Skrifa ummæli

<< Home