föstudagur, september 09, 2005

Stuttblogg
Mikið að gera hér í London seinustu vikuna. Björg kom og fór og Daði kom og er enn. Við förum svo til Ítalíu á morgun, í 10 daga.
Búið að eyða dágóðum tíma í búðum og á veitinga-og öldurhúsum, aðeins of miklum tíma ef til vill. Sólin búin að skína og skína og við brugðum okkur í strandferð til Brighton með Smára-Magnus fjölskyldunni. Nú er verið að reyna að pakka, bæði fyrir Ítalíuferðina og svo fyrir heimförina. Dótið okkar þarf nefnilega að vera klárt í gám strax eftir að við komum heim. Styttist í vörnina mína og þá bara alltbú. Helgi kominn með Moggavinnu, ég er öll í símaatvinnuviðtölunum þessa dagana, sjáum hvort kemur eitthvað út úr því. Að öllum líkindum birtist ekkert nýtt á þessari síðu fyrr en heim er komið, nema við nennum að henda færslu inn frá ítölsku netkaffihúsi. Sjáum til. Þangað til. Bæjó

2 Comments:

At 8:58 f.h., Anonymous Nafnlaus said...

Mikið rosalega er þetta fallegt fólk:o) Hafið það gott á Ítalíu, hlakka til að sjá ykkur brún og sæt þegar þið komið aftur til London!
Unnur

 
At 6:59 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

ekkert venjulega myndarlegt fólk

knús knús, takk fyrir síðast, takk fyrir mig og góða ferð til Ítalíu

Björg

 

Skrifa ummæli

<< Home