Næstum búið
-Áðan skilaði ég inn mastersritgerðinni. Vá, stórum áfanga lokið. Nú er bara vivan í lok september og þá er maður bara búinn með mastersnámið. Úlalla.
-Fórum annars í sveit um helgina. Kíktum í lítið þorp sem er rétt utan við smábæinn Didcot, sem er á milli Reading og Oxford. Bekkjarfélagi Helga bauð okkur þangað og höfðum við það notalegt þar. Grillað og spjallað og drukkið og skotið. Já æfðum okkur töluvert í að skjóta í flöskur og annað, mjög gaman.
-Kíktum líka aðeins á Notting Hill Carnival, það var ágætt, misstum reyndar af skrúðgöngunni. Við töpuðum okkur þó ekki í rassasveiflum heldur vorum bara saklausir áhorfendur.
-Nú er opnunin hjá Helga á morgun og svo tekur við náðugt frí fram að vivu. Systa kemur á laugardag og þá skal haft gaman. Sjoppa og drekka hvítt.
-Setti inn örfáar myndir hér.

2 Comments:
Til hamingju með ritgerðarskil!
Innilega til lukku með að vera orðin Meistari... eða svona næstum því ;)
Kv. Ragga
Skrifa ummæli
<< Home