Sjitt....
Mér líst ekki nógu vel á þessa frétt:
Stjórnvöld í Ástralíu vara við ferðum til Pattaya
Stjórnvöld í Ástralíu hafa varað ástralska ríkisborgara að ferðast til Pattaya-strandarinnar í Taílandi af ótta við hryðjuverk.Ástralska utanríkisráðuneytið
segir að Ástralar í Taílandi, svo sem í Pattaya, eigi að fara með gát, einkum á svæðum þar sem útlendingar eru fjölmennir. Ráðuneytið segir að hættan á árásum gegn Áströlum og hagsmunum Ástrala í Taílandi sé mikil því talið sé að hryðjuverkamenn hafi látið á sér kræla í landinu.
Ráðuneytið hefur einnig varað Ástrala við ferðalögum til eyjarinnar Phuket við Taíland. Þá hafa stjórnvöld ákveðið að efla viðbúnað við sendiráð Ástralíu í Bangkok í Taílandi. Stjórnvöld í Kambódíu greindu frá því í gær að þau hefðu handtekið tvo Taílendinga, sem eru grunaðir um að tengjast Jemaah Islamiyah, sem er samtök herskárra múslima.
Aldrei þessu vant, þá þekki ég nefnilega fjölmarga Íslendinga sem eru að fara til Phuket.... Vona að það ruglist enginn á þeim og Áströlum:S

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home